Gerður Rósa

alveg súper.......

26.03.2010 10:12:40 / grosa

Mars 2010

jæja þá er mars alveg að fara að verða búin ! það er nú meira hvað þetta getur verið fljótt að líða !
ég kláraði tamningarvinnuna mína á Dalvík nú á föstudaginn síðasta eða 20. mars :d
þaðan lá leið mín svo bara heim á Hvammstanga og í sjoppuna að vinna, einnig er ég búin að vera að ríða út hérna heima og það gengur alveg ágætlega bara ;)
eins og venjulega er nóg að hafa fyrir stafni hérna og ýmislegt sem er að fara að gerast á næstu dögum og vikum
í kvöld 26.mars er svokallað sláturhússmót sem að er tölt mót með smá sprelli,annað kvöld er svo sýningin ræktun á króknum og þangað er leiðinni haldið. á sunnudag er síðan æfing fyrir söngvakeppni og um næstu helgi er svo stóra stundin ! söngvakeppnin sjálf 8)

og það var alveg svona gaman í fyrra hehe..... :)

ójá já svona er nú það


» 18 hafa sagt sína skoðun

04.03.2010 10:00:25 / grosa

ring a ding ding

jæja þá er ég komin með einhverja helvítis pest
og hún er svo ótrúlega skemmtileg vegna þess að hún er, en er eiginlega samt ekki !!!
sko það er hor, beinverkir, hósti og eitthvað þess háttar en svo kemur hitinn bara svona þegar að honum hentar. hann fer þegar að ég er ekki að gera neitt svo þegar ég ætla að fara að gera eitthvað þá kemur hann ! þannig að ég ligg bara í rúminu í staðin fyrir að vera ríða út eins og ég vildi heldur vera að gera :(

um síðustu helgi átti hestamannafélagið þytur afmæli og það var haldin þvílíka veislan
það byrjaði allt á svakalega skemmtilegri sýningu og síðan um kvöldið var grill og eitthvað glens

20 mars fór ég og keppti á bautatöltinu á akureyri það var ógeðslega gaman :d ég fór með Katarínu frá Tjarnarlandi og við fengum 5.83 í aðaleinkunn þrátt fyrir frekar mikið af hnökrum í sýningunni :dhttp://photos-a.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-ash1/hs484.ash1/26466_337377595565_625850565_4161150_2024620_n.jpg
hérna erum við í hraðabreytingunum :)

og hérna erum við í hæga töltinu ;)

kveðja Rósa


» 23 hafa sagt sína skoðun

08.02.2010 21:40:41 / grosa

verð bara að dansa hraðar

það er margt um að vera í mínu lífi þessa dagana.
á föstudaginn var fyrsta mótið í mótaröðinni og það var fjórgangur.
það gekk nú misvel hjá fólki eins og gengur og gerist :!:
á laugardaginn lá leið mín fyrst á Núp með Krissa og svo til Guddu þar sem við stelpurnar sjænuðum okkur fyrir þorrablótið sem að var seinna um kvöldið
það var svo gríðarlegt stuð á þorrablóti, skemmtiatriðin voru vægast sagt ógeðslega fyndin og ég er ekki frá því að nokkrir hafi eflaust pissað í sig af hlátri ;)
svo fer að verða stíf dagskrá hjá mér, á fimmtudag byrjar kEA mótaröðin á akureyri sem að ég hef ákveðið að taka þátt í svo er það Bautatöltið og nottla mótaröðin heima líka svo það er nóg um að vera á næstunni.
á föstudaginn er svo þorrablót númer 3 og er það er ásbyrgi
ójá já svona er þetta nú bara
þangað til næst
Rósa 8)


» 23 hafa sagt sína skoðun

28.01.2010 21:37:00 / grosa

það var verið að kvarta

já það hefði ég nú aldeilis haldið
ég fékk símtal áðan sem var bara býsna skemmtilegt, ég var búin að spjalla í svona dágóða stund og svo var að koma að kveðjustund og þá segir þessi ákveðna manneskja ....
"já og farðu svo að uppfæra þetta blessaða blogg þitt !! "
haha.. já ég fæ þetta nú ekki oft en það er gott að vita að það eru einhverjir sem að nenna að lesa þetta bull í mér :d
en þessi ákveðna manneskja var nú bara mín elskulega Systir :d

ég veit nú ekki alveg hvað ég á að segja ykkur sniðugt, ég er bara að temja og temja og þjálfa og þjálfa og gengur sinn vanagang !
Handboltinn er í uppáhaldi núna enda eru strákarnir að standa sig. 8)

það gleður mig einnig að Despó sé byrjað aftur, það er einmitt í sjónvarpinu núna og það er búið að taka mig hálftíma að koma þessum stutta texta til skila
og ég held að ég hafi þetta bara gott í bili
sjúbbídúa 8)


» 20 hafa sagt sína skoðun

19.01.2010 21:14:49 / grosa

Handbolti

í þetta skipti er það handbolti sem að fær mig til að skrifa
þannig er nú mál við vexti að það var að enda æsispennandi leikur
ísland-Serbía
og helvítis djöfull við vorum að vinna þennan djöfullsins leik
þegar að bara allt í einu og ekki í fyrsta skipti liðið verður bara eins og það sé hætt
ok liðið okkar er búið að standa sig mjög vel og eru rosalega góðir núna en þetta er þeirra veikleiki verð ég að segja
ef að eitthvað gengur ekki upp þá sér maður þá bara gefast upp og hætta :!:
og þegar að við fengum vítið úffff,,
ég á bara ekki til orð, ef að ég hefði verið þjálfarinn þá hefði ég ekki leyft snorra steini né ólafi að taka þetta víti, mér fannst þeir bara ekki vera að standa sig í þessum leiK !!!!

úff það er nú gott að geta komið þessu frá sér hehe... þvílíkt sem að maður getur orðið pirraður !!!!!
en samt sem áður
 
ÁFRAM ÍSLAND

kveðja Rósa handbolta pirringur.is ;)


» 26 hafa sagt sína skoðun

24.12.2009 17:17:18 / grosa

Gleðileg Jól :)

það er loksins komið að því !
jólin eru komin
og meira segja fáum við alveg grá jól hérna á Hvammstanga vona bara svo innilega að það snjói meira.
í augnarblikinu erum við Ríta bara að bíða eftir því að maturinn verði tilbúin og svo PAKKARNIR !
ég hef ekkert breyst síðan að ég var lítil, verð´nú bara að viðurkenna það, mér finnst þetta alltaf jafn spennandi ;)
er búin að hrista og þukla pakkana 8)
þetta er nú bara einu sinni á ári !!
svo á ég sko afmæli eftir 5 daga vúhúhúhúúú:!: þá verð ég sko orðin 21 árs gömul og ég segji nú bara eins og gamla fólkið
" mér líður bara eins og ég sé 16 ára ennþá " hehe.... ;)

en ég vil óska öllum Gleðilegra jóla og vona að allir hafi það sem allra best um jólin

jólakveðja Rósa http://www.autumnpresence.com/Beth/ChristmasTheHorse_colour_small.jpg


» 24 hafa sagt sína skoðun

02.12.2009 14:54:58 / grosa

ætli veturinn sé loksins komin

það er ekki hægt að segja annað en að það hafi verið býsna kallt úti síðustu daga og í dag er toppinum náð því að það má segja að það sé eiginlega bara hríð hérna á Hvammstanga :d

mér finnst það nú reyndar ekkert leiðinlegt því að mér finnst ekkert skemmtilegra en að pakka mér inn í einhver hlý föt og fara og hoppa í snjóinn, svo lengi sem að snjórinn fer ekki inn í sokka, oní háls oooog þú veist hvað ég meina ;)

það er sko aldeilis komin desember og það er mun styttra í jólin en maður heldur !
ég get ekki beðið eftir því að rífa upp pakkana og éta jólamatinn með kartöflugratíni ummmm namm :d
svona veður er best ! mikil sól, logn og Mikill snjór
Vikar og Denni bara í góður gír á Dalvík 2008

Rósa


» 22 hafa sagt sína skoðun

16.11.2009 09:44:12 / grosa

draugar.........

þessa stundina er ég að byrja að skrifa heimildaritgerð um drauga og draugagang og þess háttar, ég hefði nú alveg mátt vera aðeins duglegri í tímanum en ég tek þetta bara með trompi í næstu tímum.
ef þið vitið um eitthverja sniðuga bók um drauga eða vefsíðu eða eitthvað þá þigg ég alveg uppástungur :d

eruði búin að átta ykkur á því að það er að styttast alveg svakalega í jólin !!!
ég er komin í rosalegt jólaskap8) er búin að skrifa óskalista yfir jólagjafir og ég veit ekki hvað og hvað hehe...
pabbi fussaði nú bara þegar að ég sagði honum það og sagði
"pfff... helduru að þú fáir einhverjar jólagjafir ?"
hehe.... kallinn alltaf með einhvað bögg ;)

svo hlakkar manni nottla alltaf til allra viðburða í kringum jól og áramót
svo sem
kokeilboðið hennar Eydísar
staðarskálamótið
(þarf maður virkilega að fara að halda með Gretti núna ?)8|
ammælið mitt víííííí 8)
og fleira og fleira

en segjum þetta gott í beli !!



» 20 hafa sagt sína skoðun

03.11.2009 18:41:53 / grosa

ma ma, mí mó ,la la la la

núna er voða voða gott að æfa sig bara að tala aftur :|
ég var nebbla í hálskirtlatöku og mér líður hreinlega eins og ég kunni ekki að tala því að ég þarf að reyna þvílíkt að koma einstaka orðum út úr mér, það er bara mjög erfitt og ég tala alltaf eins og ég sé full 8)
það er reyndar soldið fyndið :d

um næstu helgi liggur leiðin svo á uppskeruhátið Þyts :!::!:
og ég verð nú að viðurkenna að ég er farin að hlakka svolítið mikið til :d
og sérstaklega til þess að geta borðað góðan mat því ég er lítið annað búin að borða þessa vikuna nema jógúrt og eitthvað þess háttar
og svo nottla skemmtiatriðin ;)

eftir að hvolparnir fóru af heimilinu var ein dama rosalega ánægð, það er nú ekki hægt að segja annað !!
þessi dama heitir Ríta og er sko að lifa lífinu núna hehe;)
henni finnst bara alveg ótrúlega gott að vera laus við þá og getur komið með okkur ef að við förum eitthvað, sofið í friði og fær alla athyglina :d



Rósa


» 19 hafa sagt sína skoðun

23.10.2009 11:19:12 / grosa

þú trúir því kannski ekki......

en í gær eignaðist ég nýjan vin ;)
það var skjóttur FOLI sem er í hesthúsinu hjá Helgunni hehe..
við vorum þvílíkt að bonda eins og maður segir það 8)

eenn um síðustu helgi var okkur Krissa boðið í óvissuferð með Reykjaskólaliðinu og það var alveg rosalega gaman og við fengum alveg geðveikan mat :d á laugardeginum hitti ég mann sem að er talað um í uppáhaldslaginu mínu Selfoss er en það var engin annar en suðurlandsins eina von hann Bjarni Harðarson 8)
en hann var leiðsögumaðurinn okkar og hann var nú bara frekar fyndinn náungi:!:

nú er allt að verða voðalega fínt í íbúðinni á Reykjaskóla hjá okkur komin sófi og læti :!: og hann er ógeðslega flottur þó ég segi nú sjálf frá. endilega komiði og prófið hann bara ;)

svo um helgina þarf ég að láta af hendi tvo rosalega sæta hvolpa :(
en þar sem ég veit að þeir lenda hjá góðu fólki þá er það nú í lagi og þeir fara líka ekki svo langt :d

þarna sofnaði þessi dúlla


og svo kom þessi og sofnaði bara svona hehe.

og svona voru þeir svo eftir að ég stóð upp hehe...


» 22 hafa sagt sína skoðun

05.10.2009 17:40:36 / grosa

Réttir 2009

ó mig auma
ég get nú ekki sagt annað en að ég sé enn að jafna mig eftir helgina
djöfull var rosalega gaman !! úffff
ég held nú bara að það hafi verið slegið met í fólksfjölda í skemmunni á föstudagskvöldinu heima!! ég skrapp frá í smá stund og svo þegar ég kom aftur þá var bara allt orðið troðið :d
en það er nú ekki leiðinlegt
réttirnar voru líka góðar og eins og árin á undan þá vann ég nottla ekki neitt í happdrættinu:$
svo er ég ekki frá því að þegar ég átti að fara að gera mig klára á ball að þá hafi smá þvinka gert vart um sig ;) en það var nú ekki lengi hehe...
Kolla og Agnar bróðir giftu sig óvænt í skemmunni á föstudaginn og þetta var bara alvöru vígsla og allt :)
mamma var nottla alveg á fullu og stressið alveg að fara með hana heh...
en pabbi var bara slakur á kantinum 8)

svo er ég búin að setja fullt af myndum undir Stóðréttir 2009


» 23 hafa sagt sína skoðun

30.09.2009 15:38:45 / grosa

það er að koma að því

það eru að koma stóðrétttir vííííí
þetta er sko atburður sem að maður bíður eftir allt árið :d

ég fór í laufskálarétt um síðustu helgi og ég verð að segja að sýningin sökkaði svo ég sletti nú aðeins !!
ji minn sko hún var svo leiðinleg að við fórum bara í hléinu8| og það er nú slæmt
ballið á barnum eftir það var reyndar algjör snilld og mikið fjör
daginn eftir nenntum við svo ekki í réttirnar enda ógeðslegt veður og yfirleitt ekkert rosalega gaman í þeim
en ballið stóð svo fyrir sínu :d

en var ég búin að minnast á hvað ég er orðin spennt !!!
mamma er búin að vera á fullu að undirbúa enda ekkert lítið sem að þarf að gera
mér skilst að það sé bara langt síðan að veiðihúsið fylltist og svo er nottla fullt að fólki í súpu og þess háttar ohhhhh...... þetta er svo gaman


fuuuullt af fólki fyrir utan geymsluna heima í kaffi
veðrið hefði samt mátt vera skemmtilegra á föstudeginum en það er samt ekkert til að kvarta undan og það var svo geggjað veður á laugardeginum.
bara gaman


allir í réttir !!!!8)


» 18 hafa sagt sína skoðun

21.09.2009 12:00:22 / grosa

það er svo margt sem að mig langar í !!!!

í gær fór ég að hugsa um hvað ég ætti nú að gefa fólki í jólagjöf, þó það sé kannski full snemmt þá er nú allt í lagi að fara að pæla aðeins í þessu því að venjulega er ég alveg eins og einhver apaheili þegar ég á loksins að fara að velja gjafir handa fólki 8|
svo fór ég að pæla því hvað mig langar í alveg ótrúlega mikið :!:
eitt sem að mig langar í þessa stundina er ný úlpa og draumaúlpurnar eru þessar
http://www.66north.is/verslun/images/PRODUCT/large/W11775-900.jpg
66°norður úlpa sem er ekki alveg ókeypis

http://zo-on.is/components/com_ahsshop/images/vara298.jpg
zo-on úlpa en mig langar í svona rauða eða svarta

svo ef ykkur langar að gefa mér eitthvað þá þigg ég alveg svona úlpur hehe... ;)
laufskálaréttir eru um næstu helgi og stefnan er tekin á eitthvað sem er á föstudeginum og kannski í réttirnar sjálfar en mér finnst bara svo drep leiðinlegt í þessum blessuðu réttum að það er ekki einu sinni fyndið. það er bara ekkert um að vera þarna !!! maður labbar bara endalaust í hringi og aldrei hef ég séð inn í almenninginn í öll árin sem að ég hef farið :s
ég verð nú að segja að mér finnst nú soldið mikið gert úr þessum réttum því að það er ekkert hægt að gera nema ´þá ríða á móti stóðinu sem er alveg ágætt

einnig vona ég að skemmtunin sem er á föstudagskvöldið verði eitthvað aðeins skemmtilegri heldur en síðustu ár því að það heftur verið býsna slapt og ég held að það hafi verið allra lélegast í fyrra !! þá var þetta rosalega leiðinlegt, ekkert spennandi og það eina sem bjargar kvöldinu er skeiðið :!:
úff maður kemst alveg í ham 8)
ég vona að þetta verði skárra í ár :d


» 26 hafa sagt sína skoðun

14.09.2009 17:33:31 / grosa

þáttur billjón

það getur nú verið allt í lagi að liggja uppí rúmi og gera eeekki neitt nema horfa á sjónvarpið, eeeen ekki í marga daga 8|
ég er búin að liggja og horfa á sjónvarpið í allan dag og það er strax að verða þreytandi :!:
sem betur fer eru Friends þættirnir ótrúlega skemmtilegir

reykjavíkur ferðin var viðburðarrík
keypti mér skó
keypti allskonar dót í íbúðina
borðaði fullt af nammi
tók tvö stærðfræðipróf á netinu
kláraði starfsferilskránna
og fleira og fleira

ooog mér leiðist :( búhú

mig hlakkar til stóðréttanna

ég verð nú að segja að bloggin mín fara síversnandi úfff ég veit bara ekki hvað ég á að skrifa þegar ég loksins kem mér í það að byrja á þessu en einvernveiginn get ég bara ekki sleppt þessu hehe...

þangað til næst

 


» 28 hafa sagt sína skoðun

09.09.2009 18:48:36 / grosa

og þá er bókin búin

ég er með eina stærstu frétt sem ég hef sett hérna inn held ég
þetta á kannski eftir að koma einhverjum á óvart en ég er BÚIN að LESA HEILA BÓK8|
hún var sko 275 bls. og heitir Love star
þetta gerði ég ekki að gamni mínu heldur er þetta bók sem á að lesa í íslensku og er þetta í fyrsta skiptið sem ég les eitthvað í bók sem á að lesa 8)
úff ég er svo stollt af mér hehe... ;)

ein af okkur rítu í bíltúr einhverntímann í vor
víðidalstunguréttir eru núna um helgina og nú eru göngur, en gánamennirnir fóru upp á mánudag og koma aftur niður með féð á föstudaginn ég á einn fulltrúa í göngunum þetta árið en það er Rónalingurinn
Fannsan mín fékk kútinn í láni og ég vona bara að hann verði góður við hana :d

að sjá þetta litla rassgat hehe...;)

var ég búin að minnast á það að ég væri til í að vera indjáni 8)
flott gott að heyra


» 28 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Heimsóknir
Í dag:  21  Alls: 55573
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 764 dögum
jólin eru komin
Rósa
Klukkan
Könnun
ætlar þú að fara á uppskeruhátið Þyts